top of page

Um Gordon

NBI huggreining fyrir einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir

Hvernig eiga stjórnendur saman?
Er starfshópurinn að virka?

Ná stjórnendur ekki sambandi við starfsfólkið?

NBI greiningar geta gert kraftaverk í að stilla saman stjórnendum, aðilum í verkefnahópi eða leggja grunn að auknum skilningi í stjórnun. 

  • NBI persónuleg greining   - 8 þættir í hugsniði

  • NBI leiðtogagreining          - 8 þættir í hugsniði

  • NBI færnigreining               - 8 þættir í hugsniði

  • NBI teymisgreining

  • NBI 360° stjórnunargreining

Hvernig hugsar starfsfólkið og stjórnendur, hvernig bregst það við öðrum, hvernig tekur það ákvarðanir, hvernig er það í samskiptum - þetta veltur allt á því hvernig hver og einn hugsar.

 

Kostirnir sem fylgja því að starfsfólk og stjórnendur skilji sitt eigið hugsnið eru meðal annars að mynda betri tengsl, vera virkari þátttakandi í teymisvinnu og taka skynsamlegar og réttar ákvarðanir.

Að taka betri ákvarðanir í starfi getur með tímanum leitt til uppbyggilegra þátta  í starfsumhverfi og meiri skilnings á mörkum einkalífs og starfsumhverfis.

Til að fá starfsfólk til að skilja betur sitt hugsnið - er hægt að nota vottað og vel rannsakað mælitæki. Við höfum valið að bjóða upp á Neethling hugmælitækið („Neethling Brain Instrument“), NBI™, sem grunn áreiðanlegra upplýsinga um hughneigðir og skilgreiningu á heildarhugsun.

NBI-hugsnið gefa vísbendingar um hvernig:

  • við komum fram við aðra

  • við stundum viðskipti

  • við eigum samskipti

  • við leysum vandamál

  • við kjósum að forgangsraða

  • við myndum tengsl

 

Hugsnið okkar gefur vísbendingu um hvernig fólk hneigist til að eiga samskipti, stjórna, læra, kenna, leiða, leysa vandamál, taka ákvarðanir og margar fleiri hliðar lífsins. Kostirnir sem fylgja því að skilja þitt eigið hugsnið eru m.a. að fólk myndar betri tengsl, er virkari þátttakandi í teymisvinnu og tekur skynsamlegri og meira viðeigandi ákvarðanir. 

Þó að „hughneigðir“ fólks geti stundum verið gagnlegar við ákveðnar aðstæður geta þær einnig dregið úr getu til að starfa vel og markvisst. Til að starfsfólk geti orðið skilvirkari – bæði persónulega og í starfsumhverfi - þarf fólk að skilja hughneigðir sínar betur.

Gerð hafa verið snið af yfir 2.000.000 einstaklingum á ýmsum aldri frá mörgum löndum með NBI™. Áframhaldandi rannsóknir við fjölda háskóla og stofnanir eru enn ómissandi hluti af heilavísindum. Nú eru til 20 mismunandi NBI™-greiningar til bæði persónulegra og viðskiptalegra nota.

Nokkrar mikilvægar staðreyndir um NBI
 

  • NBI byggir á vísindarannsóknum. Dr. Kobus Neethling þróaði NBI með því að gera snið af yfir 200.000 eistaklingum á ýmsum aldri frá mörgum löndum. Áframhaldandi rannsóknir standa yfir við fjölda háskóla og stofnana og eru hluti af heilavísindum eins og þau standa nú.

  • Heimsþekktir sérfræðingar stýra NBI. Dr. Neethling, sem Bandaríska líffræðistofnunin hefur viðurkennt sem einn af 500 „Áhrifamiklum leiðtogum“, leiðir NBI af miklum eldmóði. Það sem er enn meira spennandi er það alþjóðlega teymi sérfræðinga og fagmanna sem deila þeim eldmóði og hafa kosið að tileinka sér NBI.

  • NBI er ekki „ný uppfinning“ eða tískubóla. Meginreglurnar sem NBI byggist á voru uppgötvaðar á sjöunda áratugnum. Það sem gerir NBI skilvirkt og áhrifaríkt er að með því eru flóknar vísindalegar mælingar sem hafa verið gerðar á löngum tíma teknar saman í einfaldar athuganir sem geta auðgað líf okkar.

  • NBI mun ekki reyna að breyta þér. Þú ert einstök mannvera og það sem þú hefur er fullkomið eins og það er. NBI mun ekki uppfæra þig til „betri gerðar“, heldur veitir þér leiðbeiningar til að skilja sjálfa(n) þig betur og aðstoða við að gera það besta með því sem þú hefur.

  • NBI mun ekki mæla rétt eða rangt. NBI mælir ekki gott eða slæmt, velgengni eða mistök. Þegar þú tekur NBI-greiningu, koma engin neikvæð leyndarmál um þig í ljós, og jafnvel án þess að meta þig getum við veitt þér smá innanbúðarvitneskju: „Í þér er alls ekkert sem er lýsa má sem slæmu eða sem mun leiða til þess að þér mistakist.

  • Auðvelt er að hrinda niðurstöðum NBI í framkvæmd. Gríðarmiklum tíma og vinnu var varið í að þróa NBI sem tæki fyrir alla. Við erum stolt af því að í notkunarleiðbeiningunum okkar er ekkert óþarfa „nördatal“ eða torskiljanleg hugtök.

  • NBI mun gagnast fyrirtækinu þínu og einkalífi. NBI hefur gert 20 mismunandi mælitæki sem nýtast bæði einstaklingum og fyrirtækjum. Við bjóðum viðeigandi tillögur fyrir starfsferil þinn, sambönd og námsmynstur og allt þar á milli.

Stutt lýsing á fjórum 

grunnhughneigðum NBI

Ríkjandi blá (L1) hugsun snýst í hnotskurn um að …

  • halda sig við kjarna málsins og hafa sitt á hreinu

  • vera nákvæmur og greinandi

  • vera röklegur og horfast í augu við staðreyndir

  • vera hlutlægur og láta ekki tilfinningar þvælast fyrir sér

  • ástunda vísindaleg, einbeitt og öguð vinnubrögð

  • greina öll gögn og komast þannig að rótum vandans

  • hafa skynsemina ávallt að leiðarljósi

  • vera gagnrýninn og hreinskilinn

  • vera jarðbundinn og raunsær

  • átta sig á því að molar eru líka brauð (smámunasamur)

  • reikna, mæla, vega og meta

Ríkjandi græn (L2) hugsun snýst í hnotskurn um að …

  • viðhalda öryggi sínu í öllum myndum

  • fara gætilega, eitt skref í einu og gera hlutina í réttri röð

  • vera árangurs- og verkefnadrifinn

  • halda í hefðir – breyta ekki bara breytinganna vegna

  • vera skipulagður og halda yfirsýn

  • vera snyrtilegur og hafa allt í röð og reglu

  • láta ekki glepjast – vera staðfastur

  • vera stundvís og bera virðingu fyrir tíma annarra

  • fara ekki af stað nema öll smáatriði séu á hreinu

  • leggja áherslu á framkvæmda-, verk- og kostnaðaráætlanir

Ríkjandi rauð (R2) hugsun snýst í hnotskurn um að …

  • láta sér lynda við annað fólk – vera félagslyndur

  • sýna virðingu og hlýju í framkomu við aðra

  • nota virka hlustun, hlusta eftir því sem ekki er sagt

  • eiga auðvelt með að afla sér fylgjenda

  • hafa stemninguna góða og andrúmsloftið létt

  • hafa hugrekki til að vinna með tilfinningar

  • vera óhræddur við nánd og snertingu

  • hafa persónuleg gildi að leiðarljósi

  • nýta innsæi sitt og næmni fyrir líðan annarra

  • bera virðingu fyrir fjölbreytileika fólks

Ríkjandi gul (R1) hugsun snýst í hnotskurn um að …

  • vera frjáls og fyrirbyggja stöðnun 

  • hugsa út fyrir kassann og prófa nýjar aðferðir 

  • sjá hlutina með annarra augum 

  • skapa og leyfa listrænum hæfileikum að njóta sín 

  • hafa mörg járn í eldinum 

  • vera ráðsnjall og kænn – koma með nýjar lausnir

  • sjá fram í tímann 

  • leyfa ímyndunaraflinu að njóta sín 

  • vera óhræddur við að samþætta ólíkar hugmyndir 

  • skoða heildarmyndina​

Meeting
NBI.jpg
bottom of page