Þú getur það - láttu drauminn rætast
Markþjálfun byggir á þeirri hugmyndafræði að svörin liggi alltaf hjá þér, en markþjálfi aðstoðar þig við að sjá hlutina í öðru samhengi og hjálpar þér að skipuleggja aðgerðir til láta þína drauma rætast.
Viðfangsefni markþjálfunar geta verið tengd starfsumhverfi eða einkalífi, hvort sem það snýst um að ná markmiðum varðandi fjármál, hjónaband, barnauppeldi, áhugamál, líkamsrækt eða hvers konar sjálfsþroska.“
Markþjálfun er ákveðin aðferðarfræði í samskiptum sem ætlað er að gera þig virkari í að koma þínum áhugamálum og viðfangsefnum í framkvæmd
1. Markmið - hverju vilt þú ná fram?
Í byrjun er lögð áhersla á þau markmið sem marksækandi óskar eftir að leggja áherslu á í markþjálfuninni.. Farið er yfir markmiðið og þá stöðu sem væri ef því væri náð.
2. Raunveruleiki - hvað er mögulegt?
Þegar markmiðið liggur fyrir er byrjað að safna saman upplýsingum í til að fá góða yfirsýn yfir stöðuna og möguleika til að ná árangri.
3. Valkostir - greining á valkostum
Farið er yfir mögulega valkosti og leiðir sem leitt geta til ákjósanlegrar niðurstöðu að markmiðinu og kostir og gallar metnir.
4. Leiðin - aðgerðir skipulagðar
Hér er athyglinni beint að því móta leiðina sem marksækjandi ætlar að fara til þess að ná sínum markmiðum og sett upp aðgerðaráætlun.

Leiðin í markþjálfun
Þarftu á markþjálfun að halda?
Lífið snýst ekki um að finna sig, heldur að þróa sig.
-
Ert þú á tímamótum í þínni vinnu eða persónulega lífi?
-
Viltu gera breytingar á þínu lífi, en veist ekki hvar á að byrja?
-
Áttu þér markmið og metnað sem þú virðist aldrei geta náð?
-
Finnst þér að aðrir nái meiri árangri en þú?
-
Ertu að furða þig á hvers vegna þú færð aldrei það sem þú vilt?
-
Ertu að breyta um lífsstíl og þarft að laga sig að nýjum aðstæðum?
-
Hefur þú misst vinnu eða vantar jafnvægi í lífinu?
-
Finnst þér þú hafa villst af leið eða glatað tilganginum í lífinu?
-
Kvartar þú mikið um tiltekna þætti í þínu lífi?
-
Áttu erfitt með að einbeita þér eða taka ákvarðanir?
-
Finnst þér þú vera ótengd/ur heiminum í kringum þig?
Ef þú hefur svarað "já" við einni eða fleirum af þessum spurningum og ert staðráðin/n í að gera breytingar, þá gæti markþjálfun verið svarið. Pantaðu ókeypis kynningartíma (smella)
Hér kynnist þú markþjálfun. Mánaðar prógram einu sinni í viku þar sem farið í gegnum stöðuna, möguleikana og rætt um möguleg markmið.
Leið 1 - Virkaðu betur
Leið 2 - Virkaðu lengur
Þriggja mánaðar prógram, fyrst einu sinni í viku og síðan aðra hverja viku. Hér setur þú markmið, skipuleggur aðgerðir og mótar leiðir.
Leið 3 - Virkaðu alltaf
Eftirfylgni einu sinni í mánuði. Farið yfir virkni aðgerða og árangur metinn og unnið endurmat á aðgerðum og leiðum til að ná settu markmiði.
Þekkingarmiðstöðin Virkaðu Drekavellir 26 Hafnarfjörður
Sími 5542684 - 8524556 - gudmundur.kristinsson@gmail.com
Virkaðu og njóttu lífsins
2014 © Ekki má afrita efni síðunnar nema með leyfi Virkaðu.