Þekkingarmiðstöðin Virkaðu
Virkaðu býður upp á markþjálfun, námskeið, fyrirlestra og vinnustofur fyrir einstaklinga, pör, fjölskyldur og hópa sem vilja ná meiri árangri og auka sín lífsgæði. Hjá Virkaðu starfa markþjálfar samkvæmt siðareglum International Coach Federation (ICF) og Félags Markþjálfa á Íslandi.
Hvað gerir markþjálfari hjá Virkaðu fyrir þig?
Við aðstoðum þig við að nýta þína hæfileika og reynslu til að ná meiri árangri. Við virðum þín mörk og ef þú ert opin/n og tilbúin/n að deila þínum hugsunum, löngunum og takmörkunum, þá munum við aðstoða þig við að forgangsraða þínum málum. Markþjálfun hjá Virkaðu snýst um þig og er á þínum forsendum.

Guðmundur G. Kristinsson

Guðmundur G. Kristinsson er með markþjálfunarnám frá Evolvia. Hann var formaður íþróttafélagsins Fjölnis, formaður Íbúasamtaka Grafarvogs, formaður Miðborgarsamtaka Reykjavíkur, formaður landsamtakanna Ferðafrelsi og er í dag í stjórn markþjálfa á Íslandi.
Guðmundur leggur áherslu á einstaklings- og tengslamarkþjálfun og sérstaklega markþjálfun fyrir fólk í sambandi og fjölskyldumarkþjálfun. Lífsgæðin hjá hverjum og einum mótast af samskiptahefð og fólk getur með því að tileinka sér ákveðið samskiptamunstur, ná fram auknum lífsgæðum í sambandi, í uppeldi og innan fjölskyldu.
Þóra Dal Þorsteinsdóttir

Þóra Dal Þorsteinsdóttir er menntaður grafískur hönnuður og hefur starfað sem slík í mörg ár, bæði sjálfstætt og hjá öðrum. Þóra lauk grunnnámi í markþjálfun hjá Evolvia haustið 2013 og hefur um nokkurt skeið unnið hjá Evolvia við ýmis verkefni.
Hún hefur áratuga reynslu af 12 spora vinnu bæði í 12 spora samtökum og hjá kirkjunni í andlegu ferðalagi. Hún vill styðja við allan andlegan vöxt og vellíðan. Hún hefur áhuga á að sjá fólk uppgötva og gleðjast yfir eigin verðleikum og hæfni og að það noti alla sína eiginlega til að gefa draumum sínum vængi. Þóra er mjög skapandi og stundar bæði myndlist og tónlist í frítíma sínum.
Kristín Guðnadóttir

Kristín Guðnadóttir er menntaður markþjálfi. Stærsta áhugamálið er að aðstoða fólk á öllum aldri við að finna gleðina og tilganginn í lífinu, yfirstíga hindranir og skerpa á markmiðum sínum. Kristín er menntuð á uppeldissviði og hef áhuga á heilsutengdum málum og óhefðbundum lækningum.
Kristín hefur reynslu af hjónastarfi og vinnu með pörum sem vilja finna gleðina í sambandi sínu, af rekstri framleiðslu fyrirtækis, fjármálum, starfsmannahaldi og þjónustu við stóran hóp viðskiptavina, að reka fyrirtæki í samstarfi við maka, af barnauppeldi og námsörðugleikum og eflingu sjálfstrausts unglinga, af eiginkonuhlutverkinu, móðurhlutverkinu, ömmuhlutverkinu og að annast aldraða foreldra, af búsetu erlendis og óhefðbundnu tungumálanámi, af glímu við glútein og mjólkuróþol.
Virkaðu og njóttu lífsins
2014 © Ekki má afrita efni síðunnar nema með leyfi Virkaðu.
Þekkingarmiðstöðin Virkaðu Drekavellir 26 Hafnarfjörður
Sími 5542684 - 8524556 - gudmundur.kristinsson@gmail.com