top of page

Hittu Dr. Thomas Gordon

Brautryðjanda í mannauðsmálum um allan heim

Gordon Training International sem er þekktur aðili í mannauðsmálum um allan heim, var stofnað árið 1962 af dr. Thomas Gordon sem þrisvar hefur verið tilnefndur til nóbelsverðlauna. Hann er þekktur fyrir LET mannauðslíkanið (Leader Effectiveness Training), PET uppeldislíkanið fyrir foreldra, TET samskiptalíkanið fyrir kennara og YET sjálfstraustslíkanið fyrir unglinga.

 

Gordon Training International er þjónustuaðili fyrir sína samstarsfsaðila um allan heim sem bjóða upp á námskeið og innleiðingar á hugmyndafræði í mannauðs málum fyrir leiðtoga, stjórnendur, foreldra, kennara og einstaklinga í yfir 60 löndum.

 

Hugmyndafræði Dr Thomas Gordon er viðurkennd um allan heim. Hann var brautryðjandi í samskiptafærni og samskiptalegum vandamálum og kom til Íslands áður en hann lést og var með fyrirlestra (sjá). Hann er höfundur fjölda bóka sem þýddar hafa verið á 28 tungumál og seldar í 7 milljón eintaka um allan heim.

​
 

  - Parent Effectiveness Training (PET)
    Bókin Samskipti foreldra og barna var gefin út fyrst á Íslandi 1987. 
 
- Parent Effectiveness Training in Action - Discipline That Works


  - Making The Patient Your Partner 
    Meðhöfundur er W. Sterling Edwards, M.D.

​

 - Teacher Effectiveness Training (TET)
     Bókin Samskipti kennara og nemenda var gefin út á Íslandi 2001.

 
- Sales Effectiveness Training

    Samskipti og sala og þjónusta (ekki ennþá á íslensku).

​

 - Leader Effectiveness Training (LET)   
    Bókin Samskipti stjórnenda og starfsmanna (ekki ennþá á íslensku).

 

Linda Adams eftirlifandi eiginkona Thomas Gordon er forstjóri Gordon Training International og höfundur að BYB mannauðslíkaninu fyrir konur. Hún hefur gefið út bækur sem leggja grunn að færni til að þróa persónulega ábyrgð og byggja upp samstarfssambönd. Hún er með meistaragráðu í félagsfræði frá California State University í Los Angeles. Linda var eiginkona og samstarfsaðili Dr Thomas Gordon í 35 ár.


  - Be Your Best

    Vertu besta útgáfan af sjálfum/ri þér. 

 

Michelle Adams dóttir Thomas og Lindu er varaforseti Gordon Training International og hefur í langan tíma unnið að uppbyggingu á Gordon Training International á alþjóðlegum grunni.

Foto-Thomas-Gordon.jpg
linda adams mynd.jpg
bottom of page