top of page
CRW vinnustofa tekur á vandamálum í samskiptum

 

Í CRW lærir þú að átök í samskiptum eru óhjákvæmileg og geta jafnvel verið afskaplega heilbrigð. Tilvist átaka í samskiptum er ekki vandamálið, heldur hvernig fundin er lausn á þessum átökum.

 

Þú lærir hvernig á að bera kennsl á samskiptaleg átök á vinnustað, hvernig á að hlusta á sjónarmið annarra til að öðlast betri skilning og hvernig á að tjá þarfir og vandamál opinskátt og heiðarlega án þess að ásaka, gagnrýna eða kenna einhverjum um.

 

Þú munt læra viðurkennda sex þrepa aðferð til að leysa ágreining og læra að greina þarfir og hvernig á að finna nýjar meira skapandi lausnir með því að virkja þáttöku allra í hópnum. Þú munt einnig læra hvernig á að meðhöndla deilur sem upp koma á milli starfsmanna og hvernig þú getur lagt grunn að betri samskiptum á vinnustaðnum.

 

Þú lærir að leysa ágreining og skapa lausnir

 

Við höfum öll upplifað þá streitu sem fylgir því að hafa óleyst deilumál meðal okkar vinnufélaga. Átök sem eru hunsuð eða illa leyst, hverfa ekki - þau valda fólki vanlíðan og gremju og fólk fer að forðast hvert annað. Áhrifin á fyrirtækið eru lægri framleiðni, auknar fjarvistir og minni velta.

Þetta læra þátttakendur í CRW vinnustofu:
 

- Að átök eru óhjákvæmileg og afnvel heilbrigð.
  Tilvist átaka er ekki vandamálið, heldur hvernig þau eru leyst.

- Hvernig á að bera kennsl á átök í fyrirtækinu.

- Hvernig á að hlusta á sjónarmið annarra til
   að auka skilning og bæta samskipti á vinnustað.

- Tjá sig um þarfir og vandamál opinskátt og heiðarlega án þess
   að kenna einhverjum um eða gagnrýna á röngum forsendum.

-  Nota viðurkennda sex þrepa aðferð til að leysa átök þannig að
   þarfir (ekki keppa um lausnir) séu auðkenndar og
   hægt að finna nýjar skapandi lausnir með þátttöku hópsins.

-  Hvernig á að koma í veg fyrir deilur milli aðila á vinnustað.

 
Ávinningur með CRW vinnustofu:
 

-  Minni tími fer í ágreining og átök milli starfsmanna, sem eykur
    tíma í virka vinnu sem skilar aukinni framlegð í fyrirtækinu.

-  Streita minnkar vegna þess að tekið er á vandamálum
   og átökum og þau leyst í stað þess að hunsa þau eða forðast.

-  Hreinskilni eykst vegna þess að starfsfólki finnst auðveldara
   að tala um sín vandamál og taka á á eigin ágreiningsmálum.

CRW vinnustofur í samskiptavandamálum

Effica - Ármúli 6 - 108 Reykjavík - Sími 5171400 - www.effica.is - gudmundur@effica.is - © 2015 Allt efni er einkaleyfisvarið. Afritun óheimil nema með leyfi Effica.

bottom of page