
Betri árangur, aukin virkni og meiri framlegð
Leader Effectiveness Training (LET) er öflug hæfnisþjálfun sem þróar mannleg samskipti og átakafærni hjá stjórnendur og starfsfólki. Með LET læra stjórnendur í fyrirtækinu að skilja hvenær og hvernig á að beita öflugum verkfærum sem hafa mælanlega áhrif á hegðun, venjur og skoðanir starfsmanna. Árangurinn verður meira gefandi og virkari vinnustaður.
LET - umhverfi sem aðlagast almennu hegðunarferli
Ólíkt annari þjálfun, þá er LET byggt á brautryðjandi rannsóknum Dr Thomas Gordon stofnanda Gordon Training International (GTI) sem skapaði einstakt umhverfi og verkfæri sem saman eru LET. Umhverfið er hannað frá grunni til að aðlagast almennu hegðunarferli fólks, með skilningi á þeim sálfræðilegu þörfum sem fær fólk til að hegða sér eins og því er eðlilegt.
LET - virkari starfsmenn stuðla að betri afkomu í rekstri
Það þarf meira en tæknilega getu og viðskiptakunnáttu til að ná árangri í umhverfi fyrirtækja í dag. Hæfni til að miðla og bregðast við átökum er í raun jafn mikilvægt, ef ekki mikilvægara. Aukin samskiptahæfni og meiri samvinna skilar betri árangri, aukinni virkni og meiri framlegð. Þú getur valið um að taka einstök námskeið eða vinnustofur eða fara í innleiðingu á TM árangurskerfinu
LET - alvöru breytingum þarf að fylgja eftir með góðri þjálfun
LET leggur grunn að breytingu frá hefðbundinni stjórnun (frá toppi og niður) í samstarfs stjórnun. Slíkri breytingu þarf að fylgja þjálfun, þar sem fólk lærir hvernig á að haga samskiptum og samvinnu í nýju samskiptalegu umhverfi. Margir kunna þetta ekki vegna þess að fjölskyldur, skólar og vinnustaðir byggja á hefðbundnu stjórnunar-líkani frá toppi og niður. Það er hægt er að leggja þessa gömlu hegðun niður og fólk getur lært og notað færni sem er nauðsynleg til að innleiða nýjan samstarfs stjórnunarstíl.
LET - árangur er staðfestur samkvæmt rannsóknum
Fjöldi rannsókna sýna að fyrirtæki með samstarfs stjórnunarstíl gengur betur fjárhagslega en þeim með miðstýrðan. Fleiri og betri hugmyndir, frítt flæði upplýsinga, betri ákvarðanir, hærri framleiðni, betri mórall, færri fjarvistir – hefur allt jákvæð áhrif á að niðurstöð-una. 10 ára rannsókn hjá 30 fyrirtækjum sem birt var á árinu 1996 sýndi að "fyrirtæki sem viðhalda góðri stjórnun skapa umhverfi sem kemur í veg fyrir og jafnvel útrýmir streitu á vinnustað – voru með hærri sölu, betri hagnað og meiri framlegð "(Dennis Kravetz, 1996).
LET hugmyndafræðin í hnotskurn
LET byggir á hagnýtri samskiptafærni sem gerir stjórnendur virkari í starfi. Þetta er áskorun á núverandi hegðun og hjálpar aðilum að sjá og viðurkenna eigin slæmu venjur. Þetta gerir þeim kleift að læra hvað á að gera í staðinn og hvernig á að forðast að endurtaka mistökin.
LET býður upp á einstakan ramma í hegðunarmynstri, sem gerir stjórnendur hæfa til að nema hvernig hegðun og samskiptafærni er viðeigandi og að ákveða hvenær og hvar á að nota þetta.
LET veitir hagnýt og öflug verkfæri: Virka hlustun, Ég-skilaboð, hvernig á að skipta um samskiptaleið og aðferð til að forðast samskiptaleg átök. Samræmi og viðeigandi notkun þessara verkfæra er mjög áhrifarík til að byggja upp traust
LET kennir þátttakendum að greina á milli þarfa og lausna í samskiptalegum átökum. Ein hindrununin í að sjá uppbyggjandi endapunkt, er tilhneiging til að standa fast á sinni uppáhalds lausn. Aðferð III í LET hjálpar þátttakendur að sigrast á þessari hindrun.
LET leggur áherslu á skýrleika í samskiptum. Áður en að þú býrð til ákveðnar forsendur, stekkur á ákveðna niðurstöðu, sérð ekki sjónarmið annarra eða notar orkuna á óviðeigandi hátt, hvetur LET þig til að fá fram staðreyndir, með því að hlusta á hvað hinn aðilinn er að segja um sín vandamál og hvað þau snúist raunverulega um.
Stjórnandinn þjónar starfsfólkinu sem þjónar viðskiptavinum
Fyrirtæki sem stofna til og stuðla að þátttöku starfsmanna og miðla upplýsingum eru yfirleitt betur rekin en fyrirtæki sem eru rekin á grunni miðstýringar (Lewin, 1988). Með því að gefa starfsfólki tækifæri til að taka þátt í stjórnunarum-hverfi, næst fram lægri velta, aukin framleiðni og betri fjárhagsstaða (Huselid og Becker, 1995).
Stjórnendur mæta þörfum starfsfólks með skilningi og vinna með því á þann hátt að markmiðum fyrirtækisins. Stjórnandinn þjónar starfsfólkinu og starfsfólkið þjónar viðskiptavinunum. Markmiðið er að mæta þörfum samstarfsfólks og viðskiptavina og efla þar með hag fyrirtækisins til langframa.
TM - árangurskerfið



