
Um Dr. Thomas Gordon og Gordon Training International
Dr Thomas Gordon (1918 - 2002) er stofnandi Gordon Training International (GTI). Hugtakið um Gordon hugmyndafræðina er í dag þekkt og viðurkennt um allan heim og hann er almennt viðurkenndur sem brautryðjandi í kennslu á samskiptafærni og í lausnum á samskiptalegum vandamálum með sínum aðferðum fyrir foreldra, kennara, unglinga, stjórnendur og starfsmenn.
Dr Thomas Gordon var löggiltur klínískur sálfræðingur með BA próf frá DePauw háskólanum, M.A. próf frá Ohio State Háskólanum og doktorsgráðu frá háskólanum í Chicago. Hann er höfundur níu bóka og bækur hans hafa verið gefnar út á yfir 28 tungumálum og seldar í yfir 7 milljón eintaka um allan heim.
- Parent Effectiveness Training (PET)
Bókin Samskipti foreldra og barna var gefin út fyrst á Íslandi 1987.
- Teacher Effectiveness Training (TET)
Bókin Samskipti kennara og nemenda var gefin fyrst út á Íslandi 2001.
- Leader Effectiveness Training (LET)
Bókin Samskipti og samvinna í fyrirtækjum (áætluð útgáfa á Íslandi 2016).
- Sales Effectiveness Training
Bókin Samskipti og sala í fyrirtækjum (áætluð útgáfa á Íslandi 2016).
- Group - Centered Leadership
- Parent Effectiveness Training in Action - Discipline That Works
- Making The Patient Your Partner
Meðhöfundur er W. Sterling Edwards, M.D.

Leader Effectiveness Training (LET) prógrammið (kynnt árið 1977, endurskoðað mörgum sinnum síðan) hefur verið kennt í hundruðum fyrirtækja um allan heim og þar á meðal hjá mörgum Fortune 500 fyrirtækjum. Dr Gordon er viðurkenndur sem frumkvöðull í að þróa líkan af lýðræðislegri samstarfsforystu og skilgreina hana sem leið til samskiptafærni og að skapa lausnir á samskiptavandamálum.
Parent Effectiveness Training (PET) prógrammið sem hann kynnti á árinu 1962, er almennt viðurkennt sem fyrsta hæfnisumhverfið fyrir foreldra. Þetta umhverfi hefur nú verið kennt til milljóna foreldra í yfir 43 löndum um allan heim.
Dr Gordon var tilnefndur til Nobel friðarverðlaunanna árin 1997, 1998 og árið 1999 var hann viðtakandi “American Psychological Foundation
”verðlaunanna og fékk á árinu 1999 “Gold Medal Award” fyrir sitt framlag í sálfræði í þágu almennings. Hann var einnig viðtakandi “2000 Lifetime Achievement verðlaunanna frá California Psychological Association
Frumkvöðull sem breytti heiminum
Um Dr.Thomas Gordon

