top of page

Um Effica - okkar metnaður snýst um þín markmið

Effica var stofnað á árinu 2015, en undirbúningur stóð yfir í þrjú ár. Í janúar 2016 opnar Effica starfsaðstöðu í Ármúla 6 í Reykjavík og fyrsta vinnustofan í LET umhverfinu var haldin í janúar 2016.

 

Effica er latína og þýðir skilvirkni og endurspeglar þann grunn sem kemur fram í einkunarorðum fyrirtækisins "breytt viðhorf - betri samskipti". Með því að efla og styrkja breytt viðhorf verða samskiptin skilvirkari, fyrirtækjamenning virkari og afkoma í rekstrarumhverfi betri.

 

Effica aðstoðar fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök við að ná meiri árangri. Byggt er á alþjóðlegu umhverfi Gordon Training International sem er notað af þúsundum aðila um allan heim.

 

Effica kennir starfsfólki samskiptafærni til að leysa samskiptaleg vandamál, tileinka sér árangursrík vinnubrögð og skapa þannig öflug, betri og viðvarandi tengsl á vinnustað og í fjölskyldu. Markmiðið er betra fyrirtæki, betra starfsfólk og meiri framlegð úr rekstri

 

Effica kennir fólki að að þekkja hvernig og hvenær á að nýta sér öfluga samskiptafærni LET. Þegar fólk hefur lært þetta og tileinkað sér, verður það óaðskiljanlegur hluti af samskiptum frá degi til dags. 

Effica starfar með fyrirtækjum og stofnunum að því að innleiða breytingar í rekstri til að ná fram meiri árangri. Innleiða hæfni í samskiptalegum átökum og efla starfsanda til að auka framleiðni.

 

Effica er með vottað leiðbeinendaumhverfi fyrir starfsmenn til að leiða LET stefnumótun inn í fyrirtækjum og stofnunum. Sérþjálfun og vottun leiðbeinenda byggir á alþjóðlegri hugmyndafræði Gordon Training International.

 

Effica er með leiðbeinendaþjálfun fyrir lykilstarfsmenn sem færir þeim réttindi til að stýra framkvæmd á námskeiðum og vinnustofum og leiða þjálfun eftir innleiðingu. Þannig geta fyrirtæki og stofnanir notað eigið starfsfólk til að viðhalda stefnumót og gert LET að hluti af innri starfsemi fyrirtækisins og þannig lækkað kostnaður við innleiðingu.

 

Effica hefur það að markmiði að vinna með fyrirtækjum og stofnunum að því að bæta starfsanda, efla samskiptahæfni, minnka kostnað í rekstri og bæta afkomu. Með því að efla samskiptahæfni, innleiða aukið samstarf og virkja þáttöku starfsmanna í ákvörðunartöku er verið að efla markaðslega stöðuog bæta samskiptahæfni og verið að auka virkni starfsfólks og lengja starfstíma fólks með mikla reynslu hjá fyrirtækinu.

Effica - Ármúli 6 - 108 Reykjavík - Sími 5171400 - www.effica.is - gudmundur@effica.is - © 2015 Allt efni er einkaleyfisvarið. Afritun óheimil nema með leyfi Effica.

bottom of page