
LET - starfaðu sem sjálfstæður leiðbeinandi
Með LET vottun getur þú starfað sem sjálfstæður leiðbeinandi með innleiðingar, vinnustofur og námskeið í LET. Sem sjálfstæður leiðbeinandi ertu í samstarfi við Effica og getur fengið þar eigin vinnuaðstöðu og aðstöðu fyrir vinnustofur og innleiðingar. Allar vinnustofur og námskeið byggja á hugmyndafræðilegum grunni GTI og þú fær öll námsgögn og innleiðingarefni hjá Effica á íslensku.
Effica er sífellt með í gangi markaðs- og kynningarátaki á LET á Íslandi og sjálfstæðir leiðbeinendum geta fengið hjá Effica markaðsefni s.s. myndlista, rannsóknarefni, nafnspjöld, A4 kynningarblöð, efni fyrir beina markaðssetningu, plaköt og fleira
Vottaðir leiðbeinendur geta fengið einkaleyfi til að sinna ákveðnum svæðum á landinu eða stýra ákveðnum leiðum frá GTI. Slík leyfi eru háð samþykki og samningum við Effica. Effica stefnir að því að vera með vottaða aðila í öllum leiðum GTI í öllum landsbyggðahlutum (prenta kynningarblað fyrir LET).
LET - leiðbeinendavottun fyrir þróun í fyrirtækjum
Fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök fá stuðning til að byrja með innleiðingu á LET hugmyndafræðinni og geta síðan notað sitt eigið starfsfólk til að viðhalda þeirri þróun og stefnumótun. Þannig verður LET hluti af innri starfsemi fyrirtækisins og kostnaður til lengri tíma lægri.
Effica er með vottunarferli fyrir LET leiðbeinendur í fyrirtækjum og stofnunum þar sem lykil starfsmenn fá réttindi til að stýra framkvæmd LET stefnumótunar innan starfseminnar og sjá um áframhaldandi þjálfun starfsmanna til lengri tíma.
Að fá LET leiðbeinendavottun fyrir einn eða fleiri af starfsmenn er besta leiðin til að tryggja árangur að LET innleiðingu og viðhalda þeirri stefnumótun sem ákveðið hefur verið að nota. Þetta eykur verðmæti fjárfestingar og heldur kostnaði við innleiðingu í lágmarki. Hér til hliðar eru fasar fyrir LET vottun:
LET - 4 stiga vottunarferli fyrir leiðbeinendur
Sjálfstæðir LET leiðbeinendur og vottaðir leiðbeinendur í fyrirtækjum og stofnunum fara í gegnum 4 stiga vottunarferli (4 vinnustofur) sem samanstendur af þátttöku í tveimur vinnustofum (3 daga og 5 daga), framkvæmd á 3 daga vinnustofu undir eftirliti master leiðbeinanda og síðan framkvæmd á eigin 3 daga vinnustofu án leiðbeinanda.
Áfangi I: L.E.T. vinnustofa
Þriggja daga (21 klst) L.E.T. vinnustofa þar sem þátttakendur læra allt um LET prógrammið, fá einstaklingsbundna athygli frá mjög hæfum þjálfara, hlusta á fyrirlestra, fá tækifæri fyrir umræður og það sem skiptir mestu máli - tækifæri til að nota þetta við alvöru aðstæður með öðrum þátttakendum og upplifa þetta í hlutverkleik.
Áfangi II: Þjálfaðu þjálfarann vinnustofa
Fimm daga „Train-the-Trainer“ vinnustofa með viðurkenndum LET leiðbeinanda hefst með djúpri endurskoðun á LET færni með hefðbundnum og raunhæfum kennsluaðferðum, þ.m.t. fyrirlestrum, hlutverkum, hópumræðu, hlutverkaleikjum, hæfnisþjálfun og umræðum í smærri hópum. Þátttakendur munu æfa kenna og fá endurgjöf frá leiðbeinanda og öðrum þátttakendum. Öllum vinnustofum er ætlað að styrkja skilvirka notkun þátttakenda á sinni LET færni sem og getu þeirra til tileinka sér þessa færni.
Áfangi III: Vinnustofa með stuðningi
Nýr leiðbeinandi skipuleggur L.E.T. vinnustofu fyrir 5-20 þátttakendur. „Master“ leiðbeinandi mun þjálfa, hafa umsjón með og styðja við bakið á nýjum leiðbeinanda og aðstoða hann/hana við að fínstilla sína færni og hæfileika.
Áfangi IV: Vottun fyrir vinnustofu
Leiðbeinendur skipuleggja og leiðbeina einir á sinni fyrstu vinnustofu og þátttakendur leggja mat á hana og senda niðurstöður til GTI. Byggt á niðurstöðum þessa mats og umsögn „Master“ leiðbeinanda, fá aðilar fulla LET vottun. Þegar þetta liggur fyrir, getur leiðbeinandi keypt þjálfunarpakka fyrir sinn vinnustað og haldið vinnustofur án frekari þjálfunar.
LET - starfa sem sjálfstæður LET leiðbeinandi eða inn í fyrirtæki eða stofnun


