top of page

Fylgdu okkur eftir

Leita eftir "tag"

Tímabil í birtingu

  • Facebook Basic Square
  • Twitter Basic Square
  • Google+ Basic Square

Stjórnendur athugið!

  • Nov 3, 2014
  • 2 min read

What-Kind-of-Leader_drop-shadow1.jpg 2014-11-9-11:20:58

Starfsfólk gerir töluvert af því að tala. Það talar við hvert annað, talar við vini sína og það talar líka við jafnaldra sína á vinnustaðapartíum, námskeiðum, ráðstefnum og á netinu. Ef þú vilt vita hvað það er tala um, þá tala það um starfið sitt. Nánar tiltekið, það talar um sína stjórnendur og vinnufélaga, að minnsta kosti eithvað af tímanum. Án þess að vita það, þá er þú sem leiðtogi með orðspor sem byggir á því hvernig fólk er að tala um þig.

Ef þú hefur ekki hugsað mikið um hvers konar orðspor þú hefur, munu svörin við eftirfarandi spurningum gefa þér ákveðna innsýn. Gakktu úr skugga um að svara þessu eins heiðarlega og opið og mögulegt er með þínum svörum:

  1. Hvernig meðhöndla ég fólk? Ef þú umgengst starfsfólk með virðingu og ekki eins og aðila sem er að vinna tiltekið starf, gætir þú haft mjög gott orðspor meðal starfsfólksinsins. Þinn karakter skilgreinir hvernig þú ferð með annað fólk, sérstaklega þá sem þú trúir að hafi ekkert að gera með þína hamingju eða velgengni.

  2. Hver er minn stjórnunarstíl? Ofvirkir eða smámunasamir stjórnendur sem leiða með hótunum og ótta eru túlkaðir af starfsmönnum sem ofríkir, ósannfærandi og óöruggir. Stjórnendur með slíkan stjórnunar stíl eiga erfitt með að halda góðu fólki í sínu liði og eru helstu samræðuefni í samtölum þegar vinir eða samstarfsmenn spyrja, "Hvernig líst þér á starfið þitt?" Stjórnendur sem skilja og ástunda það góða í fólki og efla færni með virkri stjónrun, vinna sér inn traust og virðingu allra í kringum sig.

  3. Hver eru gæðin í mínu starfi? Framkvæmdastjóri sem skilar ófullnægjandi vinnu verður ekki virtur af starfsfólkinu og mun fljótt vinna sér það orðspor að vera ekki góður stjórnandi. Stjórnendur eiga að leiða með fordæmi og þegar þeir slaka á og skila ekki góðri vinnu, setja staðall um að lág gæði og meðalmennska sé ásættanlegt. Starfsmenn taka eftir þessu.

  4. Er hægt að treysta mér? Leiðtogar sem segja sannleikann, gera það sem þeir segjast vilja gera, standast löngun til að slúðra, meta ekki suma starfsmenn fram yfir aðra og halda trúnað um efni einkasamtala, munu vinna sér orðspor um traust og heiðarleika.

  5. Hvernig bregst ég við streituvaldandi aðstæðum? Starfsfólk treystir á að þeirra leiðtogi sé rólegur og sterkur, sérstaklega við erfiðar aðstæður. Leiðtogi sem bregst harkalega við, hefrur hátt, kenna öðrum um það sem hann/hún hefur gert sjálf/ur eða tekur áhættusamar ákvarðanir ávinnur sér orðspor sem óstöðugur og að vera ekki besti aðilinn til að leiða aðra í gegnum erfiðelika.

  6. Er ég góður hlustandi? Ein öflugast þörfin hjá fólki er að á það sé hlustað og það sé skilið, sérstaklega þegar það er með vandamál. Þegar fólk fær á tilfinninguna að það sé ekki að fá óskipta athygli sins yfirmanns þegar það er að tala við hann/hana, finnst því að gengið sé framhjá sér eða það vanmetið. Stjórnendur hafa oft mikið á sinni könnu og eru stundum undir mikili streitu, en þegar þeirra fólk kemur til þeirra með sín vandamál, þarfir eða áhyggjur, þá er mikilvægt fyrir þá að ástunda virka hlustun.

Lokaspurningin til að spyrja sjálfa/n sig er, "Myndi ég vilja vinna fyrir mig?" Þitt svar við þessu getur verið þitt "Aha" augnablik.

 
 
 

Comments


Effica - Ármúli 6 - 108 Reykjavík - Sími 5171400 - www.effica.is - gudmundur@effica.is - © 2015 Allt efni er einkaleyfisvarið. Afritun óheimil nema með leyfi Effica.

bottom of page