top of page

Fylgdu okkur eftir

Leita eftir "tag"

Tímabil í birtingu

  • Facebook Basic Square
  • Twitter Basic Square
  • Google+ Basic Square

Hvernig á að byggja upp árangursríkt samstarf í hópi

  • Mar 13, 2016
  • 3 min read

Árangur í hópstarfi byggir mikið á færni stjórnanda hópsins í…

  1. að stuðla að opnum og heiðarlegum samskiptum innan hópsins

  2. að leysa ágreining þannig að enginn tapi ( "enginn tapar aðferðin")

  3. að ná fram skilvirkri og afkastamikilli ákvarðanatöku á fundum,

  4. að vera skilvirkur "verkefna sérfræðingur" sem og "heilbrigður sérfræðingur í mannlegum samskiptum"

  5. að vera sterkur og áhrifaríkur talsmaður fyrir meðlimi í hópum í því umhverfi sem þeir starfa innan sem og í öðrum hópum sem hann tekur þátt í.

Það sem er mikilvægast í að byggja upp virkan hóp og tryggja árangursríka niðurstöðu, er árangur hópstjóra við að komast hjá hindrunum á milli sín og meðlima í hópnum. Ekkert annað málefni er mikilvægara en þetta. Þetta er kjarna skilgreining á skilvirkni í forystu. Árangursríkir stjórnendur verða að hegða sér á þann hátt að þeir skynji sig næstum eins og hvern annan hópfélaga; á sama tíma og þeir þurfa að aðstoða alla meðlimi hópsins við að upplifa frelsi til að koma með innlegg og framkvæma það sem þeim finnst þurfa að gera í hópnum.

Ef stjórnendur ætla að ná árangri í að byggja upp árangursríkan hóp, verða þeir að læra ákveðna færni sem stuðlar að umhverfi þar sem allir í hópnum hika ekki við að tala um hluti, gera tillögur, taka virkan þátt í að leysa vandamál og já – þora að gagnrýna hugmyndir stjórnanda. Stjórendur verða að forðast hegðun sem hefur tilhneigingu til að skapa stöðumun á milli þeirra og meðlima í hópnum: þeir mega ekki sýna yfirburði, hroka í samskiptum eða beita valdi. Rannsóknir hafa sýnt fram á að slík hegðun dragi úr samskiptum stjórnenda og meðlima hópsins vegna þess að hún eykur fjarlægð milli aðila. Meðlimir hópsins forðast stjórendur sem þeim finnst vera ófullnægjandi eða lækki sjálfsálit þeirra.

Það er líklega þversögn að árangursríkir stjórnendur hagi sér eins og meðlimir hópsins og að virkir hópmeðlimir hagi sér eins og hópstjórar. Öruggasta einkenni um virkni hóps sést þegar aðili sem í fyrstu var meðhöndlaður eins og stjórnandi fer síðar að haga sér eins og hver annar hópfélagi. Í árangursríkum hópi, verða tillögur allra meðlima að vera metnar að verðleikum, en ekki flokkaðar eftir því hver kemur með þær. Það er aðeins þegar stjórnandi verður eins og hver annað félagi, sem hans eigin tillögur verða samþykktar eða hafnað, eingöngu byggt á verðleikum eins og hjá öðrum meðlimum. Meðlimum í hópnum finnst þá eðlilegt að segja um hugmyndir stjórnanda "Það er góð hugmynd" frekar en að hugsa "þetta ætti að vera góð hugmynd því það er stjórnandinn".

Þegar stjórnendur ná þessu "eins og hver og einn meðlimur" stöðu, efla þeir í raun það sem þeir geta lagt til í hópnum, því þeirra hugmyndir verða þá metnar eins og hjá öðrum meðlimum. Í fyrstu kann að virðast að þetta sé í bága við þá staðreynd, að við teljum að jafnaði að fólk hafi jákvæðari áhrif á hóp ef það heldur aftur af sínu áliti og leiðandi stöðu í hópnum. Hægt er að sjá alvöru dæmi um að eðlilegt sé að hafna þessari hefðbundnu trú. Við vitum að stjórnendur hafa oft meiri áhrif á hóp en nokkur annar í hópnum, en hvers konar áhrif?

Fyrir það fyrsta, eru tillögum þeirra oft tekið gagnrýnislaust af meðlimum því þeim finnst að stjórnandi eigi að vita meira en þeir. Þannig að ef hans tillögur eru ekki allar góðar (og þetta er - örugglega spurning hjá flestum stjórnendum), minnkar skilvirkni alls hópsins. Við vitum líka að stundum er tillögum stjórnenda hafnað eingöngu vegna þess að þær koma frá stjórnanda. Þetta er algeng viðbrögð við yfirvaldi - eins og þegar börn eru "neikvæð" við foreldra sína. Ef einhverjar hugmyndir stjórnanda eru góðar, enn er samt hafnað af hópnum, verða nettó áhrifin aftur til þess að draga úr heildar skilvirkni hópsins.

Þetta er ástæðan fyrir því að stjórnendur fá í raun meira frelsi til að koma með gagnlegar hugmyndir eftir að þeir hafa minnkað eða komið í veg fyrir aflmun á milli þeirra og meðlima hópsins. Ef þeir eru árangursríkir, verða þeir hluti af afkastamiklum hópnum og reyna að koma með tillögur og hugmyndir byggt á sinni þekkingu eða reynslu sem eru gagnlegar fyrir hópinn.

Hér er góð eftirfylgni um það hvernig á að byggja upp öflugan hóp frá Dr. Bill Stinnett master leiðbeinanda í LET.


 
 
 

Comments


Effica - Ármúli 6 - 108 Reykjavík - Sími 5171400 - www.effica.is - gudmundur@effica.is - © 2015 Allt efni er einkaleyfisvarið. Afritun óheimil nema með leyfi Effica.

bottom of page