top of page

Fylgdu okkur eftir

Leita eftir "tag"

Tímabil í birtingu

  • Facebook Basic Square
  • Twitter Basic Square
  • Google+ Basic Square

Andrúmsloftið á vinnustaðnum ræður því hvort starfsfólk skilar árangri eða ekki

  • Mar 27, 2016
  • 2 min read

Flestir stjórnendur hafa tæknilega getu til að vinna sitt starf á áhrifaríkan hátt. Þetta er líka yfirleitt ástæðan fyrir því að þeir voru settir í stjórnunarstöðu á sínum tíma. Tæknileg geta er samt aðeins hluti af því sem fylgir því að vera skilvirkur stjórnandi og áhrifaríkur leiðbeinandi.

Margir stjórnendur verða hissa á að uppgötva að tæknileg geta sé ekki mikilvægasti þátturinn. Tæknileg reynsla og þekking eru forsendur til góðrar stjórnunar; þetta eru nauðsynlegt að hafa, en er samt ekki nóg.

Geta til að tengja sig við aðra og hvetja fólk sem miðlar upplýsingum til stjórnanda, er miklu meira mál. Margar rannsóknir sýna að þegar fólk vinnur í umhverfi sem einkennist af virðingu, umhyggju, heiðarleika, samstarfi, samvinnu og trausti, hámarkar það framlag þess til síns fyrirtækis.

Stjórnendur geta skapað andrúmsloft með staðfestu og hreinskilni þar sem starfsfólk getur tjáð sínar hugmyndir, reynt nýja hluti, tekið áhættu, tekið ábyrgð á niðurstöðu eða andrúmsloft þar sem fólk er hrætt við að gera mistök eða vera gagnrýnt og tekur því öruggu leiðina, sem er að tala ekki um hlutina, fela vandamálin og halda aftur af eigin hugmyndum og sköpunargáfu.

Að skapa andrúmsloft þar sem fólk getur þróað sína möguleika og hæfileika, getur brotist framúr sínum takmörkunum, gert þær hegðunarbreytingar sem þarf til að vaxa og framkvæmt samkvæmt sinni hámarks getu, er ekki tilraun, mistök, heppni eða tilviljun. Ákörðun um að skapa slíkt umhverfi er meðvitað val. Þessu meðvitaða vali verður síðan að fylgja eftir með því að hafa samskiptafærni sem gerir kleift að skapa slíkt andrúmsloft:

  1. Virka hlustun til að skapar viðurkenningu og skilning hjá fólki

  2. Sjálfmiðlunarfærni sem gerir kleift að eiga samskipti á einfaldan og auðskilinn hátt

  3. Færni til að leysa samskiptavandamál í hópnum og vinna vel úr óumflýjanlegum deilum og vandamálum sem upp koma í öllum samskiptum. Þetta snýst líka um að leysa vandamál og hafa skipulagsfærni þannig að það hjálpi fólki við að bæta sinn árangur.


 
 
 

Comments


Effica - Ármúli 6 - 108 Reykjavík - Sími 5171400 - www.effica.is - gudmundur@effica.is - © 2015 Allt efni er einkaleyfisvarið. Afritun óheimil nema með leyfi Effica.

bottom of page