top of page

Fylgdu okkur eftir

Leita eftir "tag"

Tímabil í birtingu

  • Facebook Basic Square
  • Twitter Basic Square
  • Google+ Basic Square

Hvers konar samfélag viltu?

  • Mar 20, 2016
  • 3 min read

Þegar stjórnendur velja sinn stjórnunarstíl, verða þeir að hafa eitt í huga: - hvers konar fyrirtæki viljum við hafa í okkar samfélagi? Fyrirtæki eru þegar grant er skoðað, byggð upp af fólki með stjórnunarstíl sem ákvarða saman hinn sálfræðilega grunn í okkar heildar skipulagi í samfélaginu. Þvingandi stjórnendur skapa þvingandi fyrirtæki og stofnanir.

Hvers konar stjórnunarstíll þarf að vera til að allir starfsmenn upplifi að þeirra þarfir séu virtar? Það er í ósamræmi við LET hugmyndafræðina og okkar LET þjálfun að í fyrirtækjum og stofnunum eigi eingöngu að sinna þörfum og markmiðum stjórnenda. Stjórnendur þurfa að finna leiðir til að virkja þátttöku allra í ákvarðanatöku sem skilar sér síðan í meiri ánægju stjórnenda, starfsmanna, verkefnastjóra og meðlima í verkefnahópum.

Viltu starfa í fyrirtæki sem er nægilega sveigjanlegt til að laga sig að breyttum aðstæðum? Ef fyrirtæki og stofnanir eiga að lifa og dafna verða þau að hafa sveigjanleika. Vandamál á ekki að leysa eða ákvarðanir að taka, eingöngu á grundvelli þeirra sem mest hafa vald, heldur á grundvelli skapandi auðlinda allra starfsmanna sem hafa upplýsingar sem tengjast því vandamáli.

Fyrirtæki munu eiga erfitt með að lifa ef þau treysta eingöngu á stjórnunaraðferðir sem byggjast á ótta starfsmanna við að missa vinnuna eða vera sviptir sínum grunnþörfum. Það er ástæða fyrir að á síðustu 40 árum höfum við orðið vitni að byltingarkenndri þróun í mannlegum samskiptum. Fyrirtæki verja hundruðum milljóna í leit að nýju stjórnunarmynstri, nýrri stjórnþjálfun, nýjum stjórnunarháttum eða nýjum stjórnunarstíl. Til að lifa af í lýðræðislegu samfélagi verður hugsanlega að finna leiðir til að starfa lýðræðislega.

James Worthy fyrrum mannauðsstjóri hjá Sears Roebuck, kom með þessa sömu sannfærandi hugmynd fyrir nokkrum árum:

“Ef okkur er umhugað um að viðhalda "frjálsu framtaki" í Ameríku og stuðla að frelsi í heiminum, verðum við að styrkja okkar reglur á skilvirkari hátt varðandi innra skipulag og stjórnun í okkar eigin fyrirtæki ... Fyrst af öllu, stjórnkerfið verður að halda áfram að virka á áhrifaríkan hátt. Það getur ekki gert það lengi nema það náist að virkja skapandi auðlindir, getu og framleiðni einstakra starfsmanna.”

Stjórnunarlega hugmyndafræðin og aðferðir sem lýst er í Leader Effectiveness Training virðast vera rétt leið til að ná verðugu markmiði.

Hvers konar samfélag viltu þá raunverulega?

Þó að okkar samfélag hafi djúpar rætur í þeirri trú að allir borgarar hafi rétt og getu til að velja sín markmið og getu til að taka mikilvægar ákvarðanir, þá hefur okkar félagslega umhverfi í samfélaginu tilhneigingu til að færa þennan rétt til leiðtoga sinna. Það er ljóst að lýðræði í reynd er ekki alltaf það sama og lýðræði í orði.

Frelsi frá ósjálfstæði er svo enn annar mælikvarði á lýðræðisþjóðfélag. James Marshall, sem er framúrskarandi lögmaður, skrifaði einu sinni:

“Frelsi frá ósjálfstæði er grundvöllur lýðræðis. Ef fólk á að geta þróast og nýtt sína getu er nauðsynlegt, að samfélagið sé með jafnvægi á einstaklingsstöðu og að skapa samræmda festu í samfélaginu. Frelsi frá ósjálfstæði er nauðsynlegt til þroskast. Fyrir fullnægju sem náð er í gegnum sjálfstæði, er alltaf líka ófriður í skugga einhvers valds, þar sem maður hefur lítið um málin að segja.”

Þegar valdi er þjappað saman hjá nokkrum stjórnendum, minnkar sjálfstæði. Áskorunin fyrir okkar samfélag er þá að hvetja okkar leiðtoga til að tileinka sér meira stjórnunarstíl í samræmi við þær lýðræðislegu grundvallarreglur sem við höfum lært að láta okkur þykja vænt - í orði að minnsta kosti. Þessari aðferð í stjórnun þarf að sprauta inn í í lífæð hvers fyrirtækis og stofnunar í okkar samfélagi.

Ef við viljum lýðræðislegt samfélag, verðum við að hafa lýðræðisleg fyrirtæki og stofnanir, sem aftur mun þurfa lýðræðislega stjórnendur sem sjálfir hafa nauðsynlega færni tækni og aðferðir til að þróa gagnkvæmt jafnvægi í samskiptum og tengslum við fólkið sem þeir stjórna.


 
 
 

Comments


Effica - Ármúli 6 - 108 Reykjavík - Sími 5171400 - www.effica.is - gudmundur@effica.is - © 2015 Allt efni er einkaleyfisvarið. Afritun óheimil nema með leyfi Effica.

bottom of page