9 hlutir sem þínir starfsmenn þurfa að heyra frá þér
- Feb 2, 2015
- 3 min read

Í mínu hlutverki sem vörumerkjaráðgjafi, vinn ég stundum mat á sýn starfsmanna. Þetta er unnið með spurningalistum og viðtölum sem auðvelda mér að fá sýn á það hvernig starfsmenn skynja vörumerki og setja í tólf mismunandi flokka. Þannig fæ fæ ég djúpan skilning á því hvað þeim finnst um stjórnunarumhverfi fyrirtækisins.
Ég hef gert þúsundir af svona verkefnum á mínum ferli og ítrekað hefur komið í ljós að einn af topp þremur þáttunum sem starfsmenn telja sig mest þurfa á að halda frá sínum vinnuveitendum og þeir upplifa alltof sjaldan, eru "betri" samskipti. Betri í þeim skilningi að vera vandaðri, þroskandi, fræðandi og oftar. Þessi löngun fyrir betri samskipti ætti ekki að koma á óvart - ráðgjafar hafa árum saman vitnað um að slæm samskipti séu #1 aðalástæðan fyrir samskiptalegum átökum og slæmum starfsanda.
Byggt á minni reynslu og yfirþyrmandi sönnunargögnum, hef ég búið til lista yfir það sem ég tel vera þá topp níu þætti sem starfsmenn vilja heyra frá yfirmanni sínum:
"Þetta er það sem við erum að gera": Hvort sem fyrirtæki þitt er í áherslubundnum uppvexti, í jafnvægi eða einhverstaðar þar á milli, ættu starfsmenn að vita hvað fyrirtækið er að gera og í hvað átt það stefnir . Mikilvægast er svo að gleyma ekki að segja þeim hvers vegna.
"Svona ætlum að komast þangað": Allir þurfa áætlun og allir sem eiga að taka þátt, verða að vera vel tengdir málinu. Samskipti leggja grunn að ætlun og framlag allra hjálpar til að ná árangri. Gakktu úr skugga um að allir skilji hversu mikilvægt einstök hlutverk hans eða hennar eru til að fyrirtækið nái árangri.
"Segðu mér hvernig ég get hjálpað þér": Þetta er mjög öflug yfirlýsing. Það opnar dyrnar fyrir starfsmönnum – þeirra sem eru þitt vörumerki , til að láta þig vita hvernig þeir geti afkastað meiru. Þú þarft að hafa hvern og einn þeirra með þér, til að vinna meira fyrir þig og skila þroskandi og uppbyggilegum hlutum. Ef það eru einhver slæm verkfæri í skúrnum hjá fólki, viltu vita hvenær þú getur aðstoðað við að brýna þessi verkfæri.
"Ég treysti þér": Allir þurfa að heyra þetta þegar þeir eru að taka erfiðar ákvarðanir. Þessi þrjú orð hvetja fólk til að gera þá hluti sem þarf til að þú segir þetta ... (sjá # 5)
"Ég er stolt/ur af þér": Til að ná hamarksáhrifum, þarftu að vera mjög nákvæm/ur í hvers vegna þú ert stolt/ur, þannig að viðkomandi starfsmaður viti nákvæmlega hvers vegna þú ert stolltur af honum. Kláraðu eftirfarandi setningu: "Ég er stolt/ur af þér vegna þess að (settu hér inn eitthvað mjög sérstakt)."
"Það er hér sem hlutirnir fór úrskeiðis": Þegar mistök eru gerð - og það er óhjákvæmilegt – þarf að vita hvernig, hvers vegna og hvar hlutirnir fóru úrskeiðis. Þú þarft að fá mjög nákvæma skýringu á atburðarás sem leiddi til stórra mistaka, þannig að hægt sé snúa þeim yfir í lærdóm.
"Svona getum við komið í veg fyrir svipuð mistök": Auðvitað, þegar mistök eru gerð, Þarf að gera ráð fyrir því að kerfið, aðferðin eða skráningin komi í veg fyrir að slíkir atburðir endurtaki sig ekki.
"Svona erum við frábær og betri en keppinautar okkar": Ekkert innrætir betur tilfinningu fyrir stolti og uppörvun á góðum starfsanda, en að halda starfsmönnum upplýstum um það hvað nákvæmlega gerir fyrirtækið einstakt og betra en fyrirtækin sem eru í samkeppni. Það veitir öllum skilningi á þeim anda, samkeppni og baráttuhug sem þarf til að halda áfram að skara fram úr og vaxa.
"Þetta er okkar tilgangur": Þessi tengir mjög vel við # 1 og # 2 hér að framan. Það er mikilvægt fyrir starfsmenn að vita hvers vegna þú ert í viðskiptum, hvers vegna þú telur að þú munir ná árangri og hvað þú vilt að þitt fyrirtæki standi fyrir. Án tilgangs, er engin ástríða og án ástríðu, er lítil hvatning til gefa stöðugt 100%, þegar þú þarft það mest á því að halda.
Er eitthvað sem þú vilt bæta við? Ég myndi hafa áhuga á þínum hugsunum í nr. # 10.

































Comments