top of page

Fylgdu okkur eftir

Leita eftir "tag"

Tímabil í birtingu

  • Facebook Basic Square
  • Twitter Basic Square
  • Google+ Basic Square

Byltingin í mannlegum samskiptum á vinnustöðum

  • Apr 4, 2015
  • 2 min read

Þeir sem hafa fylgst vel með því sem er að gerast í fyrirtækjum, samtökum og stofnunum í okkar samfélagi, geta séð að bylting er í gangi – bylting í mannlegum samskiptum sem skiptir miklu máli. Fólk vill í dag að það sé meðhöndlað með virðingu og reisn; fólk gerir kröfu um að hafa sterka rödd í sínu vinnuumhverfi; fólk er tregara til að vera neytt og nýtt; fólk telur sig eiga rétt á að hafa sjálfsvirðingu í sínu starfi og fólk vill vera í starfi sem er þroskandi og gefandi; fólk er að gera uppreisn gegn ómannúðlegu vinnuumhverfi á mjög manneskjulegan hátt - með fjarvistum, almennum viðhorfum, blokkeringum og margskonar öðrum spellvirkjum.

Fyrir leiðtoga sem samþykkja að "mannlegur þáttur sé hafður í fyrirrúmi" og samþykkja að fyrirtæki, samtök og stofnanir séu staðir fyrir góð mannleg samskipti, mun LET umhverfi Thomas Gordon færa þeim ómetanlega færni og aðferðir. Ef þú vilt koma í veg fyrir eyðileggjandi þætti hjá fólki með þínum áhrifum, finnur þú marga áhrifaríka og öfluga kosti til þess í þessari hugmyndafræði. Ef þú vilt koma í veg fyrir að þú takir allar ákvarðanir á eigin spýtur, þá finnur þú út í þessu umhverfi hvernig á að þróa ákvarðanatöku í hópi. Ef þú vilt opna heiðarleg gagnvirk samskipti til að þú getir betur haft áhrif á meðlimi hópsins og þeir síðan betri áhrif á þig, mun “Virk Hlustun” og “Ég-Skilaboða” færni gera það fyrir þig.

Að lokum: það er eitt sem þessi hugmyndafræði mun aldrei gera. Hún mun ekki segja þér hvaða sérstöku útkomu eða niðurstöðu þú getur búist við með því að beita þessari hugmyndafræði. LET kennir þér aðeins aðferðir. Með notkun þeirra, koma mismunandi niðurstöður í mismunandi fyrirtækjum, samtökum og stofnunum, undir áhrifum frá ýmsum þáttum: Þitt umhverfi og fólkið sem þú vinnur með, efnahagslega og fjárhagslega, munu setja sitt mark á það sem er til staðar og svo framvegis. Nýja leiðir í samskiptafærni og stjórnun gætu lækkað kostnaði og bætt starfsanda, eins og í einu fyrirtæki sem ég þekki. Þín nýja samskipafærni gæti skilað þér svipuðum niðurstöðum og reynslu eins og gerði hjá FedEx , samgöngufyrirtæki með meira en 17.000 starfsmenn í vinnu. George S., Learning Center Manager, greindi eftirfarandi niðurstöður af LET þjálfun:

  • Bætt starfsánægja hlutdeildarfélaga

  • Aukin framlög nýrra hugmynda og málsmeðferð í rekstri

  • Bætt varðveisla hlutdeildarfélaga

  • Aukin starfsfærni og hæfileikar

  • Aukin framleiðni

"Niðurstöðurnar eru mjög jákvæðar; Leiðbeinendur nálgast nú sín verkefni og samstarf við samstarfsaðila með meiri samvinnu og sameiginlegum markmiðum. Hvað hefur verið öflugast að heyra af þeim mörgu persónulegu árangurssögum við höfum heyrt frá LET þátttakendum. “Margir yfirmenn og stjórnendur hafa komið og sagt mér hvað persónuleg tengsl mín við þá séu vel metin eða hafi batnað".

 
 
 

Comments


Effica - Ármúli 6 - 108 Reykjavík - Sími 5171400 - www.effica.is - gudmundur@effica.is - © 2015 Allt efni er einkaleyfisvarið. Afritun óheimil nema með leyfi Effica.

bottom of page