Vinnulýðræði sem virkar
- Apr 4, 2015
- 3 min read

Hverju getur fyrirtækið þitt búist við ef það innleiðir og stundar lýðræðislegar grundvallarreglur og aðgerðir í sínu umhverfi?
Verkfræðingur sem hafði nýlega tekið þátt í Leader Effectiveness Training var beðin um að heimsækja stíflugerð á virkjanavæði til að aðstoða við að leysa öryggis- og heilbrigðis vandamál. Þessi stærsta stífla í heimi var að upplifa allt of mörg hættuleg og kostnaðarsöm slys. Nokkrum árum áður, höfðu starfsmenn verið ábyrgir fyrir miklum skaða á svæðinu.
Þegar verkfræðingurinn kom á svæðið, var starfsmönnunum sagt að mæta í mötuneytið til fundar við hann, í stað þess að mæta á sinn vinnustað. Þetta voru um það bil 80 starfsmenn sem voru samankomnir í mötuneytinu þegar verkfræðingurinn kom og spennan var mikil. Hann taldi að ástandið væri erfitt og hætta á erfiðum uppákomum.
Skilaboðin frá starfsmönnunum voru skýr: "Þú ert bara verkfræðingur sem kemur frá höfuðstöðvum. Hvernig getur þú búist við að hjálpað okkur? Þú veist ekki hvernig það er að vera hér. "
Verkfræðingurinn, sem var ferskur úr þjálfun, sá þarna tækifæri og setti til hliðar sínar fyrstu áætlanir. Þess í stað, fór hann með starfsmennina í gegnum virka hlustun og næstu tvær klukkustundirnar, bauð hann starfsmönnum að tjá áhyggjur sínar og tilfinningar sem hann hlustað á án þess að veita viðnám eða gagnrýna og hlustaði með samúð og skilningi.
Þótt starfsmenn hefðu verið í vörn og jafnvel fjandsamlegir í upphafi fundarins, minnkaði mótspyrna þeirra að lokum. Eftir hádegismat, þegar fundurinn byrjaði aftur, hélt verkfræðingur áfram að hlusta og ganga úr skugga um að hann skildi áhyggjur þeirra og smám saman fór starfsmönnunum að líða þannig að þeir gætu verið hluti af lausninni. Verkfræðingur leiðbeindi þá starfsmönnunum í gegnum vandamálalausna aðferð sem hann hafði lært. Langtímamarkmið um niðurstöðu var: minni átök á milli vinnufélaga, færri glataðar vinnustundir og minnkun á fjölda slysa.
Nokkrar harðar staðreyndir
Þegar það er gagnkvæmt flæði samskipta á vinnustað, tjá starfsmenn sínar skoðanir og koma með tillögur. Þeim finnst í lagi að koma með staðreyndir - jafnvel neikvæðar – til að ná athygli stjórnenda. Sterkir leiðtogar gefa ekki fyrirmæli; þeir eyða tíma í að fá fram hugmyndir starfsmanna, hlusta á þeirra áhyggjur og láta þá hafa eitthvað að segja um ákvarðanir sem hafa áhrif á þá.
Nú gætir þú verið að hugsa, "Það er gott mál, en ég hef ekki tíma til að sitja og hlusta og sækja langa fundi."
Heldurðu að þú hugsaðir öðruvísi ef þú værir sannfærður um að góð samskipti og færni til að leysa vandamál gæti skilað fyrirtækinu meiri arði?
Vaxandi fjöldi rannsókna sýna að fyrirtæki með samstarfsvirka stjórnun standa fjárhagslega betur en þau sem eru með miðstýrðan stjórnunarstíl. Fleiri og betri hugmyndir, frjálst flæði upplýsinga, betri ákvarðanir, meiri framleiðni, betri starfsandi, færri fjarvistir, minni velta – hefur allt jákvæð áhrif á betri rekstarniðurstöðu.
Það kom í ljós í tíu ára rannsókn á 30 fyrirtækjum og stofnunum að stöðug ástundun á samvirka stjórnun skapar umhverfi sem dregur úr og jafnvel útrýmir marktækt streitu á vinnustað. Að auki höfðu þessi fyrirtæki meiri sölu, aukinn hagnað og meiri framlegð en önnur fyrirtæki. (Kravetz, 1996)
Fyrirtæki sem ástunda og styðja við þáttöku starfsmanna og hafa frjálst upplýsingaflæði, gengur betur en fyrirtækjum sem rekin eru miðstýrt. (Lewin, 1988)
Að gefa starfsfólki tækifæri til að taka fullan þátt, tengist minnkaðri veltu, aukinni framleiðni og bættri afkomu. (Huselid og Becker, 1995)
Þegar samvirk stjórnun var innleidd í eitt fyrirtæki, lækkað vinnutap um 50%, formlegum kvörtunum fækkaði að meðaltali úr 15 í 3 á ári og fyrirtækið jók framleiðni sína um $ 250.000. (Pesuric og Byham, 1996)
Berðu saman kostnaðinn
Auðvitað fylgir því kostnaður að innleiða lýðræðislega starfshætti og samskiptalega færni á vinnustað. Stjórnendur (og helst allir starfsmenn) þurfa að læra hvernig á að ástunda þetta lýðræði. Þetta þýðir að þeir þurfa að vita hvernig á að hlusta á áhrifaríkan hátt, hvernig á að tjá þarfir sínar án þess að ásaka og hvernig á að leysa vandamál og átök með gagnkvæmum samkomulagslausnum.
Það er heldur engin spurning um að lýðræði tekur tíma.
Íhugaðu allan kostnaðinn sem er samþykktur við að reka fyrirtækið - greiða fyrir tíma þegar starfsmenn eru ekki afkastamiklir þ.e. annaðhvort veikurir eða ekki að vinna með fullri getu; takast á við ágreining; framfylgja hlutum samkvæmt einhliða ákvörðunum; stöðugt að ráða og þjálfa nýja starfsmenn og þess háttar.
Hvort vilt þú greiða fyrir?

































Comments