top of page

Fylgdu okkur eftir

Leita eftir "tag"

Tímabil í birtingu

  • Facebook Basic Square
  • Twitter Basic Square
  • Google+ Basic Square

LET getur aukið söluna í þínu fyrirtæki

  • Dec 19, 2015
  • 4 min read

Topp tíu listi af þáttum til íhuga hvernig hægt er að auka skilning, þátttöku og virkni í fyrirtækinu.

  1. Þó LET sé frábært prógram sem slíkt, þá liggur fegurð þess og skilvirkni í heimspeki – þarna er um að ræða tilganginn og grunninn í hvernig fólk vinnur saman, meðhöndlar hvort annað og hvernig það leysir þau vandamál sem eðlilega og óhjákvæmilega eiga sér stað í daglegu umhverfi. Þetta er heimspeki, ekki prógram. Þótt fólk hafi fjárhagsáætlanir og tímatakmarkanir um fjárframlög til nota í stjórnþjálfun, þá er allt annað að tala um fjárfestingu í heimspeki sem leggur línu um það hvernig á að starfa.

  2. Er fyrir hendi lýsing á þeim kúltúr sem byggja á í fyrirtækinu og eru til sameiginleg markmið í þeim efnum? Hvað segir þessi lýsing um starfsfólkið í fyrirtækinu og heimspeki fyrirtækisins um það? Hver eru gildi fyrirtækisins? – eru þau einhvers staðar til? Hversu gott starf er unnið í stjórnun fyrirtækisins til að ná þessum gildum? Hvernig eru þessi gildi samræmd við daglega starfsemi fyrirtækisins? Það er öflug tenging á milli þessara þátta og hvað LET táknar og stendur fyrir – þú getur notaðu það.

  3. Hvernig eru stjórnunarlegir innviðir settir upp? Hver tekur ákvarðanir um þjálfun og þróun í fjárfestingum og innleiðingum á þessu sviði? Hvernig er stigveldið í ákvarðanatöku og mikilvægi ákvarðað? Hvert er þitt hlutverk í skipulagningunni og ert þú með "sæti við borðið"? Árangursrík samfelld áætlun innan fyrirtækja krefst þess að þeir sem sjá um þjálfun og þróun mannauðs hafa stjórnunarleg áhrif í fyrirtækinu. Ef þú hefur ekki áhrif, þarftu að tengja þig við einhvern sem getur talað þínu máli.

  4. Sýndu hvað þú ert með. Finndu leiðir til að sýna hvað LET heimspekin og færnin eru árangursrík. Taka erfitt mál sem þú eða aðrir eru að takast á við á þinni deild og sýndu hvernig hægt er að gera betur með LET nálguninni. Þú getur líka sett fram sögulegt samhengi - tekið nýleg átök sem fengu ófullnægjandi niðurstöðu eða er enn óleyst - og sýnt hvernig þessu tekið væri á þessu með Aðferð III í LET umhverfinu. Mæla samanburð - minna tap á vinnutíma, breytingar á veltu, komast hjá málaferlum - hvers vegna það að nota þessa aðferð hefði verið betra?

  5. Sýna fram á þörf. Gerðu starfsmannakönnun eða mat á starfsmannakúltúr, byggt á LET meginreglum og heimspeki. Hvað segir fólk um stöðuna í þessum málum í fyrirtækinu?

  6. Að upplýsa yfirstjórn fyrirtækja og fá hana til að taka þátt er oft ein af stærstu áskorunum, en það er mikilvægt vegna heildarskipulags á fjárfestingum að selja þessum aðilum hugmyndina. Íhugaðu að fá utanaðkomandi aðila til að vera með sérstakan "framkvæmdastjóra kynningarfund" um LET prógrammið. Utanaðkomandi aðili getur oft kynnt stöðu og áherslur í þessari aðferð á þann hátt, sem innri aðili gæti hugsanlega ekki gert - vegna þess að slíkur aðili hefur ekki eins mikla innherjaþekkingu um fyrirtækið og er ekki með sinn langtíma feril í starfi í húfi, slíkur aðili getur komið með erfiðar spurningar og skorað á þátttakendum með lítilli áhættu samanborið við innherja. Það er alltaf erfitt að "koma með þitt eigið" sérstaklega ef þessir aðilar eru á sama stigi eða yfir þinni stöðu.

  7. Íhugaðu að staðsetja LET sem " endurskoðun á stöðu undirmanna", sem er oft árangursríkara en að biðja þessa aðila sjálfa að fara í gegnum þjálfun ("Við vitum að þú þarft ekki þessa þjálfun ... en við höfum sett þetta upp þannig að þú getir séð það sem við getum boðið öðrum og til að fá þitt álit á efninu ... ") þeirra sýn á framsetningu á þessu er gríðarlega mikilvæg - notaðu allar aðferðir til að ná því fram. Þú ert þarna að veðja á að þátttaka þeirra varðandi efnið mun bera það áfram og leiði til þess að efla möguleika á innleiðingu á þessu inn í fyrirtækið.

  8. Gerðu heiðarleg mat á þjálfun starfsfólksins. Besta leiðin til að innleiða L.E.T. í hvaða fyrirtæki sem er, er með vitnisburði - þú vilt að fólk kveiki svo vel á hugmyndafræðinni og efninu að það segi við aðra "þú verður að sjá þetta!" Hversu líklegt er að það gerist, er í beinu samhengi við það hvernig þú setur þetta fram. Svo halda spegil upp – hvert er þitt mat á því hverju þessi þjálfun geti skilað, hvað margir noti þetta, kynna aukningu á lífsleikni og lífsgæðum í þessu og gæðum á innihaldi námskeiðsefnis og fara yfir rannsóknir sem staðfesta árangur? Útlista þann árangur sem skapast við að innleiða þetta í öllu fyrirtækinu?

  9. Inni eða úti, að selja er að selja. Þótt þú sért þjálfaður í að kynna LET og hafir mikla trú á þessu prógrammi, þýðir það ekki að einhver annar geri það líka. Hvort sem þú ert að reyna að koma þér inn fyrir dyrnar í nýju fyrirtæki eða vilt koma þessu á framfæri í þínu eigin fyrirtæki, þarf virknin í þessu að vera sú sama. Fólk kaupir þegar það skynjar leið til að leysa vandamál eða bæta ástand. Þú þarft að skilgreina þarfir og kynna þetta síðan sem leið til að mæta þessum þörfum.

  10. Að lokum, notaðu þessi atriði til að bæta þína stöðu. Taktu þennan topp tíu lista og deildu honum með þínum yfirmanni og samstarfsfólki. Notaðu þetta sem útgangspunkt til að tala um hvernig á að efla virkni og framlag starfsfólksins og hvernig notkun á þessu eflir fyrirtækið. Þetta getur verið mjög einföld leið til að nálgast núverandi umhverfi. Spyrja: hvernig eigum við að hugsa þessi atriði inn í okkar umhverfi?


 
 
 

Comments


Effica - Ármúli 6 - 108 Reykjavík - Sími 5171400 - www.effica.is - gudmundur@effica.is - © 2015 Allt efni er einkaleyfisvarið. Afritun óheimil nema með leyfi Effica.

bottom of page