top of page

Fylgdu okkur eftir

Leita eftir "tag"

Tímabil í birtingu

  • Facebook Basic Square
  • Twitter Basic Square
  • Google+ Basic Square

Lean stjórnun og LET samskiptaþjálfun

  • Jan 7, 2016
  • 2 min read

Þessi tvö umhverfi, Lean stjórnun og LET stjórnvirkniþjálfun eru að eiga við tvö ólík svið í viðskiptum. Markmiðið með Lean er koma í veg fyrir eða minnka óþarfa virkni/aðgerðir til að gera viðskiptaumhverfið hagkvæmara. Markmiðið með LET er að kenna stjórnendum mannlega þætti til að eiga betri samskipti og auka þeirra hæfni við að leysa samskipta vandamál hjá starfsfólki, sem skilar sér í aukinni starfsmannaánægju, meiri virkni hjá starfsfólkinu og meiri framlegð úr rekstrinum.

Lean stjórnun

Fókusinn í Lean er að koma í veg fyrir óþarfa hluti. Þetta er byggt á þeirri hugmynd að allt sem fullnægir ekki lágmarksþörfum sé óþarfi og slíkar aðgerðir séu kostnaðarsamar og skili engum verðmætum.

Lean stjórnun býður upp á kerfisbundna nálgun við að greina, minnka og koma í veg fyrir óþarfa hluti. Þetta skilar aukinni starfsmannaánægju, styttri verkferlum, minni kostnaði, meiri möguleika á að gera hluti rétt í fyrsta skiptið og eykur hagnað.

Til að innleiða Lean fyrir stjórnendur þarf ýmislegt að fylgja. Þar sem þetta kerfi gerir ráð fyrir því að breyta fólki, þurfa stjórnendur að hafa frábæra mannlega eiginleika til að þetta gangi upp. Þetta inniheldur bæði að geta átt skýr og góð samskipti við aðra og hafa getu til að hlusta þegar starfsfólk kemur með gagnrýni eða sýnir hræðslu við breytingar. Þetta þýðir líka að fyrir hendi þarf að vera hæfni til að takast á við fólk og þeirra vandamál og leysa samskiptavandamál ef þau koma upp.

Vöntun á mannlegri samskiptahæfni er oft ástæða fyrir því að Lean innleiðing mistekst.

LET samskiptaþjálfun

LET er öflugt, hæfnistengt þjálfunarkerfi sem hannað var af doktor Thomas Gordon og byggir upp mannlega samskiptaþætti og eflir hæfni til að eiga við samskiptavandamál hjá stjórnendum. Þetta umhverfi byggir á því að fólk virki betur þegar tekið er tillit til þeirra þarfa og það fær að hafa áhrif á ákvarðanatöku í málum sem tengjast þeim. Fólk verður áhugasamara, meira skapandi, áreiðanlegra, virkara og líður betur.

Í gegnum LET læra stjórnendur að æfa og skilja hvenær og hvernig þeir geti notað öflugt safn verkfæra sem skapa möguleika á að eiga góð skýr og góð samskipti án ásakana og hafa virka hlustun og getu til að leysa samskiptaleg vandamál þannig að enginn tapi. Að þekka og geta notað þessa hæfileika leiðir til færri samskipta vandamála, virkari tíma til vinnu og minnkar kostnað vegna vandamála hjá fólki.

Þegar stjórnendur og starfsfólk hefur þessa grunn samskipta- og samstarfshæfni, er það miklu líklegra til að samþykkja og geta tekið þátt í virkri innleiðingu á einhverju eins og Lean stjórnun sem hugsuð er til að bæta árangur í rekstri hjá fyrirtækinu.


 
 
 

Comments


Effica - Ármúli 6 - 108 Reykjavík - Sími 5171400 - www.effica.is - gudmundur@effica.is - © 2015 Allt efni er einkaleyfisvarið. Afritun óheimil nema með leyfi Effica.

bottom of page